19.2.2009 | 20:15
Frumlyf eða samheitalyf?
Þessi hraðsoðna frétt um lyfjaverð vekur óneitanlega upp spurningar hjá mér. Hvað segja þessar niðurstöður? Ég geri mér ekki grein fyrir því. Til þess er of margt óljóst.
Erum við að tala um veltuhæstu lyf óháð stöðu sem frum- eða samheitalyfs? Eru íslenskir læknar að vísa fólki á hagstæðustu lyfin?
Fyrir mér myndi það skipta álíka miklu máli hvort öll frumlyf eru ódýrust hér á Íslandi, og hvort Ferrari F40 sé ódýrastur á Íslandi. Ég ímynda mér alla vega að þegar sjúklingar horfa í verð lyfja á annað borð, þá kjósi þeir frekar ódýrari lyf sé þess kostur.
Ég sakna þess að Lyfjagreiðslunefnd gefi ekki upp hvort um frumlyf eða samheitalyf sé að ræða í þessu yfirliti sínu.
Og .... í stað þess að taka til verð á veltuhæstu pakkningum innanlands ... hvernig væri að snúa þessu við og sýna verð hér miðað við veltuhæstu lyf t.d. í Svíþjóð?
3 af 35 ódýrust á Íslandi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Heilbrigðismál | Facebook
Um bloggið
Laurent Friðrik Arthur Somers
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Lyfin eru öll á listanum !
Lestu nú áður en þú gagnrýnir :p
Birgir Guðjónsson (IP-tala skráð) 20.2.2009 kl. 07:47
Kæri Birgir, ég veit ekki hvaða lista þú átt við, en ég las pdf-skjalið sem vísað var í áður en ég skrifaði þessa færslu, og ég get ekki lesið út úr því plaggi hvað er samheitalyf og hvað ekki (ég er ekki læknir).
Laurent Somers, 3.3.2009 kl. 17:04
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.